Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 27. júlí 2014 16:30
Grímur Már Þórólfsson
Heimild: Football Espana 
Sunderland nálgast Rodriguez
Rodriguez í leik með Úrúgvæ
Rodriguez í leik með Úrúgvæ
Mynd: Getty Images
Cristian Rodriguez er að yfirgefa Atletico Madrid og að öllum líkindum til Sunderland en umboðsmaður hans er sagður vera í London til að klára félagsskiptin.

Rodriguez var ekki byrjunarliðsmaður hjá spánarmeisturunum á síðustu leiktíð og því vil hann leita á önnur mið.

Rodriguez mun hitta fyrir hjá Sunderland landa sinn Gus Poyet þjálfara liðsins. Þetta hafði Poyet um Rodriguez að segja:

,,Hann vill fara til félags þar sem hann mun spila í hverri viku. Það eru fullt af jákvæðum hlutum í gangi og þegar að leikmaður eins og hann er á lausu, munum við að sjálfsögðu reyna að semja við hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner