Nú er að hefjast stórleikur KR og Breiðabliks í Pepsi-deildinni en með því að smella hérna má fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Kópacabana, stuðningssveit Blika, hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar en meðlimir sveitarinnar eru ekki sáttir við trommubann sem gildir á KR-vellinum.
„Er einhver sem getur svarað okkur með þá fáránlegu reglu að trommur séu bannaðar hjá í Frostaskjólinu?" skrifaði Kópacabana á Twitter í dag.
Með þeim í stúkunni á leiknum er sérútbúið pappaspjald með mynd af Kristni Kjærnested, formanni knattspyrnudeildar KR, þar sem við stendur „Enga hávaðamengun!".
Skiptar skoðanir eru á trommubanninu á KR-vellinum en það var upphaflega sett þar sem Miðjan, stuðningsmannasveit KR, lætur söng og klapp nægja en stuðningsmenn annarra liða áttu það til að reyna að kæfa í stuðningnum með látum.
Athugasemdir