Viborg 0-0 AGF
AGF og Viborg gerðu markalaust jafntefli í eina leik dagsins í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Landsliðsmaðurinn, Theódór Elmar Bjarnason, lék allan leikinn í liði AGF
Mikið jafnræði var á milli liðanna í leiknum og því verða úrslitin að teljast frekar sanngjörn.
AGF er eftir þennan leik með 4 stig eftir tvær umferðir en Viborg náði í sitt fyrsta stig í dag.
Athugasemdir