Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júlí 2015 10:30
Björgvin Stefán Pétursson
Jeff Reine-Adelaide verður ekki lánaður frá Arsenal
Jeff í landsleik með Frökkum gegn Þjóðverjum
Jeff í landsleik með Frökkum gegn Þjóðverjum
Mynd: Nordic Photos
Arsene Wenger stjóri Arsenal staðfesti það eftir 1-0 sigur Arsenal á Wolfsburg að Jeff Reine-Adelaide muni ekki vera sendur á lán á næsta tímabili.

En þessi 17 ára gamli leikmaður var í fyrsta sinn í byrjunarliði Arsenal í gær.

„Hann er mjög efnilegur, hann verður að vinna með okkur núna í ár með aðalliðinu og spila með U21 árs liðinu og þróast sem leikmaður." sagði Wenger.

„Hann hefur frábæra hæfileika og hann verður áfram hjá okkur."

Jeff Reine-Adelaide er franskur unglingalandsliðsmaður.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner