Rúrik Gíslason og félagar hans í Nürnberg verða í beinni á Eurosport 2 í kvöld mánudagskvöld.
Liðið heimsækir Freiburg í fyrstu umferð B-deildar þýska boltans. Útsendingin hefst klukkan 18.00 og leikurinn sjálfur stundarfjórðungi síðar.
Eurosport og Eurosport 2 eru eingöngu í boði hjá Skjánum sem hefur einkarétt á sölu þessara vinsælu íþróttastöðva á Íslandi.
Fyrsta umferðin í þýsku úrvalsdeildinni fer svo fram helgina 14.-16. Ágúst og fjörið hefst með leik FC Bayern og Hamburger SV föstudaginn 14. ágúst.
Athugasemdir