200 fyrstu lesendur Fótbolti.net til að skrá sig fá aðgang að íslenska fótboltaleiknum Kickoff CM. Opnað verður fyrir skráningu á morgun kl 11:00.
Skráningin fer fram á sérstakri skráningarsíðu en tengill á hana birtist á á Fótbolti.net á morgun kl. 11:00.
Þeir 200 fyrstu sem skrá sig fá svo sendan aðgangskóða í næstu viku sem gefur þeim aðgang að leiknum.
Fyrirtækið Digon Games gefur leikinn út en leikurinn verður opnaður fyrir almenning í ágúst.
Athugasemdir