Pálmi Rafn Pálmason, fyrirliði KR: Palmi Rafn Palmason @palmirafn 3h3 hours ago Lunch á leikdag @bergssonmathus #AllirSemEinn
Það er flottur leikur í Pepsi-deildinni í kvöld þegar KR og Breiðablik eigast við. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport en við hvetjum lesendur til að vera með gegnum kassamerkið #fotboltinet á Twitter!
Hjörvar Hafliðason, spakspekingur?
Afhverju er Zlatan eini Norðurlandabúinn sem er að gera eitthvað hjá stóru liði? Hvað er að? Getur einhver búsettur í Sví,DK eða Nor svarað?
Kópacabana, stuðningssveit Breiðabliks:
Er einhver sem getur svarað okkur með þá fáránlegu reglu að trommur séu bannaðar hjá í Frostaskjólinu? #fotboltinet #ofgamaltfolk? #blix
Hörður Magnússon, Stöð 2 Sport:
Beinar útsendingar í 14. og 15.umferð í #pepsi365 FH-Valur og Valur-Breiðablik. #staðfest
Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður KR:
Ég vil biðla til allra íþróttafréttamanna að kalla @OskarHauksson hér eftir aldrei neitt annað en stökkmúsina.
Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fótbolta.net:
Athyglisvert að 50% lesenda Fótbolta.net í dag koma í gegnum snjalltæki, síma og spjaldtölvur. Var 30% um áramótin. #fotboltinet
Kristján Ingi Gunnarsson, stuðningsmaður Breiðabliks:
Gullskórinn frá síðasta tímabili, gríðarlega vel gert hjá @BreidablikFC! Leikmaður sem gæti breytt miklu fyrir Blika #fotboltinet #GlenMagic
Pálmi Harðarson, stuðningsmaður ÍBV:
Tekur Glenn samt ekki örugglega sjoppuvaktina sína í Dalnum ? #fjáröflun #fotboltinet #pepsi365
Halldór Marteinsson, Leiknisljón:
Kúdos á leikmenn ÍA fyrir að klappa fyrir ljónunum. Árni markmaður er líka alvöru karakter #passion #fótboltinet
Marella Steinsdóttir, Skagamaður:
Gaman að fá @Leiknisljonin á Skagann í gær, alveg til fyrirmyndar! Engin leiðindi bara gleði og stuð!
Guðmundur Marinó Ingvarsson, íþróttafréttamaður:
Hér á Fylkisvelli deilir blaðamaður 433 við vallarþul um það hvort rétt hafi verið að dæma aukaspyrnu úti á miðjum velli. #fotboltinet
Guðmundur Karl Sigurdórsson, sunnlenska.is:
Búinn að komast að því af hverju maður sér aldrei krakka í íslenska landsliðsbúningnum. Settið kostar ekki nema 22 þúsund krónur. #ksi
Þróttur Vogum tekur á móti Stálúlfi í kvöld kl.20 á Vogarbæjarvelli. Veisla, pylsur í boði. #fotboltinet
— Þróttur Vogum (@throtturvogar) July 27, 2015
Þessi fagnar komu Glenn til Breiðabliks. Loksins koma mörkin sagði Aron. #fotboltinet #pepsi365 pic.twitter.com/kp6OZW6GOC
— Haukur V. Magnússon (@haukur80) July 27, 2015
Athugasemdir