Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. júlí 2016 10:16
Magnús Már Einarsson
Andre Gomes til Barcelona (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur keypt portúgalska miðjumanninn Andre Gomes frá Valencia.

Kaupverðið hljóðar upp á 35 milljónir evra (29,3 milljónir punda) en 20 milljónir evra (16,7 milljónir punda) bætast við síðar ef leikmaðurinn stendur sig vel hjá Barcelona.

Hinn 22 ára gamli Gomes var kynntur formlega sem nýr leikmaður Barcelona í morgun.

Gomes hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Valencia en hann var áður hjá Benfica.

Gomes var í liði Portúgals sem sigraði EM í Frakklandi á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner