Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 27. júlí 2016 13:38
Magnús Már Einarsson
Arnautovic ekki til Everton - Framlengdi við Stoke
Mynd: Getty Images
Marko Arnautovic hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Stoke City.

Arnautovic var sterklega orðaður við Everton fyrr í vikunni en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Stoke.

Hinn 27 ára gamli Arnautovic kom til Stoke frá Inter fyrir þremur árum.

Hann var lykilmaður hjá Stoke á síðasta tímabili en félagið hefur verið að ræða nýjan samning við hann í marga mánuði.

Arnautovic er mættur með nýja hárgreiðslu fyrir komandi tímabil eins og sjá má á Twitter færslu Stoke er hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner