Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 27. júlí 2016 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
Ási Arnars: Hefði viljað sjá annan lit á spjaldinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson var mjög sáttur með sína menn eftir mikilvægan 2-1 sigur á Þórsurum í Inkasso-deildinni fyrr í kvöld.

Fram komst í tveggja marka forystu snemma leiks og voru Akureyringar nokkrum sinnum nálægt því að minnka muninn en inn fór boltinn ekki fyrr en í uppbótartíma.

„Við byrjuðum leikinn mjög sterkt og ég er gríðarlega ánægður með mitt lið. Liðsheildin skóp góðan og öflugan sigur," sagði Ási að leikslokum.

Alex Freyr Elísson var rekinn af velli um miðjan síðari hálfleik þegar hann fór í tæklingu. Ása fannst rauða spjaldið strangt en segist skilja ákvörðunina.

„Ég held ég átti mig á hvað hann er að fara með rauða spjaldinu en mér fannst það samt strangur dómur. Ég hefði viljað sjá annan lit á spjaldinu, ég held hann hefði haft betri tök á leiknum í framhaldinu því þetta fór svolítið út í vitleysu í kjölfarið."
Athugasemdir
banner
banner