Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórsara, var hundsvekktur eftir tapið gegn Fram fyrr í kvöld.
Fram komst yfir eftir aðeins 24 sekúndur og bætti öðru marki við á 11. mínútu en Þórsarar náðu ekki að minnka muninn fyrr en í lok uppbótartímans.
Fram komst yfir eftir aðeins 24 sekúndur og bætti öðru marki við á 11. mínútu en Þórsarar náðu ekki að minnka muninn fyrr en í lok uppbótartímans.
„Ég er grautfúll með byrjunina á leiknum, við töpuðum þessum leik í byrjun þegar við gáfum tvö aulamörk enn eina ferðina. Við vorum bara ekki tilbúnir og það hlýtur að vera þjálfurunum að kenna, að hluta til, " sagði Donni eftir leik.
„Að sama skapi vorum við mjög góðir sóknarlega í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur tvö dauðafæri og ég er mjög óhress með færanýtinguna."
Þetta var fimmta tap Þórs í röð í Inkasso-deildinni og segir Donni það hafa sálfræðileg áhrif á leikmannahópinn.
„Við erum í þessu til að vinna og það er ógeðslega erfitt að tapa viku eftir viku. Nú er það bara að núlstilla hlutina, förum inn í Verslunarmannahelgina og hreinsum hausinn. Tökum gott frí og komum ferskir til baka."
Athugasemdir