Í kvöld mætast Selfoss og Valur í undanúrslitum Borgunarbikarsins en leikið verður á JÁVERK-vellinum á Selfossi klukkan 19:15.
Selfyssingar eru í 1. deildinni en Valsmenn ríkjandi bikarmeistarar. Einn okkar reynslumesti dómari, Erlendur Eiríksson málarameistari, hefur verið settur á leikinn.
Selfyssingar eru í 1. deildinni en Valsmenn ríkjandi bikarmeistarar. Einn okkar reynslumesti dómari, Erlendur Eiríksson málarameistari, hefur verið settur á leikinn.
Frosti Viðar Gunnarsson og Oddur Helgi Guðmundsson verða aðstoðardómarar en varadómari Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
ÍBV og FH leika í hinum undanúrslitaleiknum á Hásteinsvelli annað kvöld klukkan 18. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir þann leik en aðstoðardómarar verða Birkir Sigurðarson og Bryngeir Valdimarsson. Varadómari verður Jóhann Ingi Jónsson.
Barist er um sæti í úrslitaleiknum sem leikinn verður á Laugardalsvelli 13. ágúst.
Athugasemdir