Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. júlí 2016 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Mertesacker meiddur í nokkra mánuði
Mertesacker er meiddur.
Mertesacker er meiddur.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Per Mertesacker verður fjarri góðu gamni í einhverja mánuði eftir að hafa meiðst á hné. Þetta staðfesti Arsene Wenger, stjóri Arsenal.

Þýski varnarmaðurinn fór ekki með Arsenal til Bandaríkjanna eftir að hafa meiðst í vináttuleik gegn Lens á föstudag. Nú er ljóst að meiðslin voru verri en óttast var í fyrstu og þessi reynslumikli leikmaður missir af fyrstu mánuðum tímabilsins.

Þótt ótrúlegt sé er Calum Chambers reyndasti miðvörður Arsenal í Bandaríkjunum fyrir leiki gegn stjörnuliði MLS-deildarinnar og Chivas. Laurent Koscielny er enn að hvíla sig eftir að hafa verið með franska landsliðinu á EM 2016 og Gabriel Paulista er með hálsbólgu.

Athyglisvert verður að sjá hvort Wenger versli miðvörð í sumar eða treysti á þá sem fyrir eru hjá liðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner