Brasilíumaðurinn Neymar óttast ekki að liðsfélagar sínir hjá landsliðinu muni stóla of mikið á hann á komandi Ólympíuleikum. Bendir hann á að Barcelona stóli á Lionel Messi en gangi þrátt fyrir það ágætlega.
Brasilía vill leggja allt í sölurnar til að vinna Ólympíuleikana á heimavelli í Rio de Janeiro og hvíldi Neymar til að mynda í Suður-Ameríkubikarnum til að keppa á ÓL.
Brasilía vill leggja allt í sölurnar til að vinna Ólympíuleikana á heimavelli í Rio de Janeiro og hvíldi Neymar til að mynda í Suður-Ameríkubikarnum til að keppa á ÓL.
„Ég hef aldrei viljað tala um sjálfan mig en ég skal taka dæmi út frá Barcelona," sagði Neymar á blaðamannafundi.
„Við erum með frábæra leikmenn en neitum við því að við stólum á Messi? Auðvitað stólum við á hann."
„Ég skammast mín ekki fyrir að spila fyrir hann eða fyrir þá staðreynd að hann er maðurinn. Messi er sá besti í heimi, ég vil stóla á hann."
Athugasemdir