Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 27. júlí 2016 14:30
Magnús Már Einarsson
Sporting Lisabon samdi við krabbameinsveikan strák
Francisco eftir undirskriftina.
Francisco eftir undirskriftina.
Mynd: Sporting
Portúgalska félagið Sporting Lisabon hefur samið við hinn fimm ára gamla Francisco.

Francisco er harður stuðingsmaður Sporting hann hefur verið að glíma við krabbamein.

Francisco fór í myndatöku og skrifaði undir samning hjá Sporting á dögunum. Þar var samið við Francisco um að verða tólfti maðurinn hjá Sporting.

Í samningnum kom meðal annars fram að Francisco myndi leiða lið Sporting út í vináttuleik gegn Lyon.

Francisco leiddi lið Sporting út í leikinn á heimavelli í síðustu viku en Lyon hafði betur þar 1-0.
Athugasemdir
banner
banner