Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. júlí 2016 16:15
Magnús Már Einarsson
Swansea vill fá Ulloa
Mynd: Getty Images
Swansea hefur áhuga á að fá Leonardo Ulloa, framherja Leicester, í sínar raðir.

Swansea seldi framherjann Alberto Paloschi fyrr í sumar og Bafetimbi Gomis er einnig á leið til Marseille.

Samkvæmt frétt Sky hefur Swansea hug á að fá tvo nýja framherja fyrir tímabilið.

Möguleiki er á að Gylfi Þór Sigurðsson verði í að mata Ulloa af sendingum í vetur en hann er sagður á óskalistanum.

Ulloa vill fara frá Leicester þar sem hann er aftar í röðinni eftir komu Ahmed Musa til félagsins.
Athugasemdir
banner