Ólíklegt er að Diego Costa verði áfram í herbúðum Chelsea.
Costa fór ekki með Chelsea í æfingaferð til Kína og Singapúr, en hann er ekki í plönum Antonio Conte fyrir næsta tímabil.
Chelsea kom heim úr æfingaferðinni á mánudag, en Costa er í fríi frá æfingum hjá Lundúnarliðinu á meðan hann gengur frá framtíð sinni.

Costa vill fara aftur til Atletico Madrid og er í viðræðum við spænska félagið. Atletico má þó ekki bæta við sig leikmanni í þessum glugga eftri að hafa verið sett í félagaskiptabann af FIFA. Ef samkomulag næst mun Costa fá leikheimild með liðinu í janúar.
Costa situr ekki á rassgatinu þrátt fyrir að hann æfi ekki með Chelsea. Hann er í Brasilíu og ákvað að taka þar æfingu á ströndinni.
Eftir æfinguna ákvað hann síðan að skella sér á Jet-ski. Hann fór ekki einn, hann tók hundinn sinn með sér.
Hér að neðan má sjá þetta.
@diegocosta 😂😂😂😂😂😂😂😂 why are you leaving my club this is the best thing I've ever seen pic.twitter.com/JAVTFnPf47
— Kier (@_kieransheehan) July 26, 2017
Athugasemdir