Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 27. júlí 2017 21:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Evrópudeildin: Everton með sigur í fyrsta alvöru leiknum
Wayne Rooney í baráttunni í kvöld
Wayne Rooney í baráttunni í kvöld
Mynd: Getty Images
Everton 1 - 0 Ruzomberok
1-0 Leighton Baines ('65 )

Everton varð í kvöld fyrsta enska félagið til þess að leika alvöru mótsleik á þessu tímabili þegar það mætti Ruzomberok frá Slóvakíu í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Þetta var fyrri leikur liðanna en leikið var á Goodison Park. Seinni leikurinn fer fram eftir viku í Slóvakíu.

Wayne Rooney, sem sneri aftur til uppeldisfélags síns í sumar, frá Manchester United var í byrjunarliði Everton og lék hann allan leikinn í fremstu víglínu.

Markalaust var í hálfleik en eina mark leiksins kom á 65. mínútu. Það skoraði Leighton Baines.

Everton fer því með eins marks forystu til Slóvakíu
Athugasemdir
banner
banner
banner