Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. júlí 2017 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Evrópudeildin: Viðar Örn með sigurmarkið
Viðar Örn skoraði sigurmark Tel Aviv í kvöld
Viðar Örn skoraði sigurmark Tel Aviv í kvöld
Mynd: Getty Images
Ísraelska liðið, Maccabi Tel Aviv mætti gríska liðinu Panionios í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en þetta var fyrri leikur liðanna.

Maccabi Tel Aviv sló út KR í síðustu umferð Evrópudeildarinnar en Panionios sló út Gorica frá Slóveníu.

Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Maccabi Tel Aviv og skoraði hann eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.

Viðar var svo tekinn útaf á 85. mínútu.

Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku og eru Viðar Örn og félagar í góðri stöðu, þrátt fyrir að einvígið sé langt frá því að vera búið.
Athugasemdir
banner
banner
banner