Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. júlí 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
Grabban og Steele til Sunderland (Staðfest)
Jason Steele.
Jason Steele.
Mynd: Getty Images
Sunderland hefur keypt markvörðinn Jason Steele frá Blackburn en hann á að fylla skarð Jordan Pickford sem fór til Everton í sumar.

Hinn 26 ára gamli Steele krotaði undir fjögurra ára samning hjá Sunderland.

Sunderland, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor, hefur einnig fengið framherjann Lewis Grabban á láni frá Bournemouth.

Grabban var á láni hjá Reading á síðasta tímabili þar sem hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum.

Simon Grayson tók við Leeds af David Moyes í sumar en hann á að hjálpa liðinu að endurheimta sætið í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner