Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 27. júlí 2017 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Pogba í sama gæðaflokki og Messi
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir að Paul Pogba sé einstakur leikmaður. Mourinho telur að Pogba sé í sama gæðaflokki og leikmenn eins og Messi, Neymar og Ronaldo.

Manchester United spilaði gegn Barcelona í æfingaleik í gærnótt og tapaði 1-0. Neymar skoraði eina mark leiksins.

Pogba var í byrjunarliði United í leiknum og spilaði allan leikinn. Mourinho var ánægður með frammistöðu Pogba í leiknum og hrósaði honum vel og innilega að leik loknum.

„(Lionel) Messi og Neymar, það eru einstakir," sagði Mourinho eftir leikinn. „(Luis) Suarez, (Andres) Iniesta, (Gerard) Pique, (Cristiano) Ronaldo, (Gareth) Bale, (Luka) Modric, Toni Kroos, þetta eru allt einstakir leikmenn, svo þeir geta bara spilað fyrir eitt félag, ekki tvö."

„Við getum ekki fengið þá, vegna þess að þeir eru í eigu annarra félaga. En ég verð að segja að Paul Pogba sýndi að hann er í sama gæðaflokki og þessir leikmenn, hann gerði það."

🤣🤣🤣 @leomessi @neymarjr #smile #mutour #manchesterunited

A post shared by Paul Labile Pogba (@paulpogba) on


Athugasemdir
banner
banner