Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 27. júlí 2017 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho saknar Rooney mjög mikið
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho segist sakna Wayne Rooney mjög mikið.

Mourinho, stjóri Manchester United, missti fyrirliða sinn í sumar, en Rooney var seldur til uppeldisfélags síns, Everton.

Rooney var í varahlutverki undir stjórn Mourinho á síðasta tímabili, en Mourinho saknar þess samt sem áður að hafa Rooney í sínu liði.

„Ég sakna hans mikið, hann er frábær náungi," sagði Mourinho í viðtali sem birtist hjá The Telegraph.

„Það gerist ekki oft að ég sýni tilfinningar í mínu starfi, en ég gerði það þegar hann fór. Ég er viss um að hann verði mjög góður fyrir Everton og Everton mun reynast honum vel líka."
Athugasemdir
banner
banner
banner