Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 27. júlí 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Níu ára gamall sonur Kluivert semur við Nike
Kluivert var frábær fótboltmaður.
Kluivert var frábær fótboltmaður.
Mynd: Getty Images
Ef þú hefur ættarnafnið Kluivert þá eru mjög góðar líkur á því að þú verðir frábær fótboltamaður.

Það ættu flestir að þekkja Patrick Kluivert, fyrrum leikmann Barcelona og fleiri liða, en synir hans eru að gera góða hluti.

Justin Kluivert er 18 ára og farinn að spila með aðalliði Ajax í Hollandi, en nú hefur níu ára gamall sonur Kluivert vakið athygli.

Shane heitir sá ungi drengur, en hann er búinn að skrifa undir samning við íþróttafatarisann Nike.

Shane þykir afar efnilegur fótboltmaður og er líklegur til þess að fylgja í fótspor föður síns þegar hann verður eldri.

Frá þessu greindi strákurinn á Instagram. Hann er með Instagram-reikning, en á honum er hann með 120 þúsund fylgjendur!

Hér að neðan má sjá mynd sem hann birti.

Very proud signed my first contract with @nike 💙

A post shared by Shane Kluivert (@shanekluivert) on


Athugasemdir
banner
banner
banner