Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. júlí 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ondrej Mazuch til Hull City (Staðest)
Mynd: Getty Images
Hull City hefur keypt varnarmanninn Ondrej Mazuch frá tékkneska liðinu Sparta Prague.

Kaupverðið er ekki gefið upp, en hann krotaði undir þriggja ára samning við sitt nýja lið.

Hinn 28 ára gamli Mazuch á þrjá landsleiki fyrir Tékkland.

Hann hefur undanfarna daga verið til reynslu hjá Hull.

„Auðvitað er ég gríðarlega ánægður að hafa skrifað undir samning við Hull. Það hefur alltaf verið draumur minn að spila á Englandi," sagði Mazuch við heimasíðu Hull.

Hull féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, en fyrsti leikur liðsins í Championship-deildinni er gegn Aston Villa 5. ágúst.
Athugasemdir
banner
banner