Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 27. júlí 2017 20:01
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Rúnar Páll um mörkin: Dapurt af okkar hálfu
Stjarnan er úr leik í bikarnum þetta sumarið
Stjarnan er úr leik í bikarnum þetta sumarið
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Nýta færin sem við fáum. Við fengum urmul af færum og náðum ekki að nýta færin vel," sagði Rúnar Páll, þjálfari Stjörnunnar er hann var spurður hvað vantaði upp á í tapi sinna manna gegn ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikars karla í kvöld.

Þrátt fyrir tapið var Rúnar nokkuð ánægður með spilamennsku Stjörnunnar í dag.

„Við spiluðum ágætlega en þeir komust aðeins inn í þetta síðasta korterið í fyrri hálfleik. Fram á okkar marki vorum við með leikinn. Við byrjuðum af feiknargóðum krafti í síðari hálfleik."

Rúnar var hins vegar afskaplega óánægður með mörkin sem Stjarnan fékk á sig í kvöld.

„Við fáum bara tvö hrikalega aulaleg mörk á okkur og þá má bara ekkert. Það er hrikalega svekkjandi. Þetta var hrikalega dapurt af okkar hálfu."

Stjarnan og ÍBV mætast strax aftur á sunnudag og ætla Stjörnumenn að vinna þann leik.

„Við verðum svekktir í kvöld en síðan mun undirbúningur hefjast á morgun og laugardag og við mætum tvíefldir til leiks."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner