„Áður en við misstum manninn útaf þá vorum við nokkuð góðir fannst mér og betri ef eitthvað var''.
Lestu um leikinn: Grótta 0 - 2 Selfoss
Þórhallur Dan Jóhannsson var svekktur eftir tapleikinn gegn Selfossi í kvöld en hann dróg samt jákvæða punkta úr leiknum.
„Það var fullt af góðri baráttu og það var ekki hægt að saka menn um að hafa ekki hlaupið eða barist ... það er þungt að vera einum færri í 50-60 mínútur''.
Tóti telur Gróttu hafa verið óheppna með dómgæslu á tímabilinu.
„Það er víst öðruvísi fyrir Gróttu heldur en fyrir flest önnur lið sem við höfum spilað við, þetta virðist hafa verið þannig gegnum gangandi''.
Að lokum var Tóti spurður út í Ingólf Sigurðsson.
„Samstarfi okkar Ingó er lokið, við höfum komist að samkomulagi um það að Ingólfur leiti sér að nýju liði og ég óska honum velfarnaði í því sem hann gerir og á þeim stað sem hann mun lenda''.
Athugasemdir