mið 27. ágúst 2014 10:30
Magnús Már Einarsson
AC Milan reynir að fá Torres
Fernando Torres.
Fernando Torres.
Mynd: Getty Images
AC Milan ætlar að reyna að fá Fernando Torres á láni frá Chelsea. Torres á að fylla skarð Mario Balotelli sem fór til Liverpool fyrr í vikunni.

,,Við erum á lokadögum félagaskiptagluggans og við þurfum að sjá hvort við getum krækt í öflugan framherja. Torres er klárlega öflugur framherji og við munum sjá hvort við getum krækt í hann eða annan leikmann," sagði Adriano Galliani varaforseti AC Milan.

Marco van Ginkel, miðjumaður Chelsea, hefur einnig verið orðaður við AC Milan.

,,Van Ginkel? Það er möguleiki. Við höfum sent tilboð á Chelsea og bíðum eftir svari. Við erum bjartsýnir," sagði Galliani.
Athugasemdir
banner
banner
banner