Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. ágúst 2014 13:16
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári með þónokkuð af tilboðum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen er án félags í augnablikinu en samningur hans hjá Club Brugge rann út fyrr í sumar.

Eiður er með þónokkur tilboð í hendinni en hann hefur ekki ákveðið framtíð sína. Þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður hjá Total Football við Fótbolta.net í dag.

Hinn 35 ára gamli Eiður hefur verið á Íslandi undanfarnar vikur þar sem hann hefur haldið sér í formi fyrir komandi tímabil.

Eiður lék með Cercle Brugge í nokkra mánuði í lok árs 2012 áður en hann samdi við Club Brugge í janúar 2013. Samningur hans þar rann síðan út fyrr í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner