Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. ágúst 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Jordan Rhodes fer ekki til Hull
Mynd: Getty Images
Hull hefur hætt tilraunum til að fá Jordan Rhodes framherja Blackburn í sínar raðir.

Steve Bruce vildi fá Rhodes til að fylla skarð Shane Long sem fór til Southampton á dögunum.

Blackburn hefur hins vegar engan áhuga á að selja Rhodes en hann hefur raðað inn mörkum með Blackburn undanfarin tvö tímabil.

,,Þessu er lokið," sagði Bruce um samningaviðræðurnar við Blackburn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner