Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. ágúst 2015 19:47
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild: Haukar ekki í vandræðum með Selfyssinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar 3 - 0 Selfoss
1-0 Björgvin Stefánsson ('22)
2-0 Zlatko Krickic ('43)
3-0 Björgvin Stefánsson ('87)
Nánar um leikinn

Björgvin Stefánsson og Zlatko Krickic sáu um Selfyssinga sem heimsóttu Hauka í 1. deild karla í kvöld.

Selfyssingar sköpuðu sér ekki mikið af færum og sigurinn einfaldur fyrir Hauka sem eru nú með 32 stig eftir fjóra sigra í röð.

Haukar komast upp í fjórða sæti með sigrinum en ólíklegt er að liðið geti barist við Þrótt R. og KA um annað sæti deildarinnar.

Selfoss er tveimur stigum frá Gróttu sem er í fallsæti og verður að treysta á að Grótta leggi ekki Þór af velli er liðin mætast á Seltjarnarnesi á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner