fim 27. ágúst 2015 18:55
Ívan Guðjón Baldursson
Joey Barton til Burnley (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Burnley er búið að greina frá því að Joey Barton sé búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið.

Joey Barton, sem verður 33 ára gamall eftir viku, vildi spila í úrvalsdeildinni en náði ekki samkomulagi við neitt félag þar.

Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra og er með fimm stig eftir fjóra leiki í Championship í ár.

Barton hefur leikið fyrir QPR síðustu ár og féll með félaginu úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner