fim 27. ágúst 2015 12:00
Elvar Geir Magnússon
Lokatækifæri til að fá miða á Holland - Ísland
Icelandair
Úr leiknum gegn Hollandi á Laugardalsvelli.
Úr leiknum gegn Hollandi á Laugardalsvelli.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Uppgjöri á miðasölu KSÍ á leikinn Holland-Ísland í undankeppni EM karla 2016 er nú lokið og liggur fyrir að um 100 miðar eru eftir til sölu (ósóttar/ógreiddar pantanir, o.fl.).

Nú er því lokatækifæri fyrir áhugasama að tryggja sér miða á leikinn. Sendið tölvupóst á [email protected] eigi síðar en kl. 16:00 föstudaginn 28. ágúst með neðangreindum upplýsingum.

Fullt nafn
Kennitala
GSM númer

Leikurinn fer fram á Amsterdam Arena í Hollandi þann 3. september og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Leikmannahópur Íslands fyrir leikinn verður opinberaður á morgun.
Athugasemdir
banner
banner