Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 27. ágúst 2015 09:20
Magnús Már Einarsson
Mario Balotelli til AC Milan (Staðfest)
Farinn aftur til Ítalíu.
Farinn aftur til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið framherjann Mario Balotelli á láni frá Liverpool út tímabilið.

Balotelli spilaði með AC Milan árin 2013 og 2014 og þekkir því vel til hjá félaginu.

Þessi 25 ára gamli Ítali kom til Liverpool fyrir ári síðan en hefur ekki náð að festa sig í sessi á Anfield.

Balotelli skoraði einungis eitt mark í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og í sumar hefur hann ekki fengið að æfa með aðalliði Liverpool.

Balotelli spilaði 28 leiki með Liverpool á síðasta tímabili en ólíklegt er að þeir verði fleiri í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner