Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. ágúst 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Pennant og Jóhann Berg gætu orðið liðsfélagar
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Jermaine Pennant æfir þessa dagana með Charlton Athletic.

Jóhann Berg Guðmundsson spilar með Charlton en liðið er með átta stig eftir fjóra leiki í Championship deildinni.

Hinn 32 ára gamli Pennant er án félags eftir að hafa yfirgefið Wigan í lok síðasta tímabils.

Pennant hefur áður verið á mála hjá Arsenal, Birmingham, Liverpool, Real Zaragoza sem og FC Pune City í Indlandi.

Guy Luzon, stjóri Charlton, ætlar að fylgjast með Pennant á æfingum næstu dagana og ákveða síðan með framhaldið.
Athugasemdir
banner
banner
banner