Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 27. ágúst 2015 14:00
Elvar Geir Magnússon
Thiago með nýjan samning við Bayern
Hinn meiðslahrjáði Thiago Alcantara.
Hinn meiðslahrjáði Thiago Alcantara.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Thiago hefur skrifað undir nýjan samning við Bayern München þrátt fyrir að meiðsli hafi sett stórt strik í reikninginn hjá honum síðan hann kom til Þýskalands,

Thiago gekk í raðir Bayern frá Barcelona 2013 þegar Pep Guardiola fékk hann til félagsins.

Þegar hann hefur verið leikfær hefur hann sýnt hæfileika sína og nú hefur þessi 24 ára leikmaður verið verðlaunaður með nýjum samningi sem gildir til 2019.

Þýskalandsmeistarar Bayern hafa unnið báða tvo leiki sína í þýsku bundesligunni á þessu tímabili en á laugardag leikur liðið gegn Bayer Leverkusen í beinni á Eurosport 2.
Athugasemdir
banner
banner
banner