Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 27. ágúst 2015 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Þórhallur Dan: Flest lið vilja slást við okkur
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Þórhallur Dan, aðstoðarþjálfari Hauka, er stoltur af leikmönnum sínum eftir góðan 3-0 sigur á Selfossi fyrr í kvöld.

Þórhallur segir önnur lið í 1. deildinni vera smeyk við að spila boltanum á jörðinni gegn Haukum og þar af leiðandi sé mikið um háa bolta og líkamlega baráttu í leikjum liðsins.

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  0 Selfoss

„Ég veit ekki hvort þetta er týpískur Haukasigur. Flest lið virðast vilja sparka boltanum hátt og slást við okkur," sagði Þórhallur eftir sigurinn.

„Það er kannski því þeir vilja ekki að við setjum boltann niður og hreyfum hann því við erum góðir í því.

„Jájá, það er alveg rétt, við þurfum að berjast fyrir hverju einasta stigi og við vissum það reyndar fyrir tímabilið. Týpískur Haukasigur, menn uppskera eins og þeir sá."


Haukar eru búnir að vinna fjóra leiki í röð og eru fimm stigum frá Þrótturum í öðru sæti, en Þórhallur sér ekki fram á að Haukar geti komist bakdyramegin inn í Pepsi-deildina.

„Nei, það er ekkert sem við erum að hugsa um. Við erum bara að hugsa um að móta þetta lið sem við erum með til framtíðar. Við eigum reyndar Þrótt næst en við erum með KA þarna fyrir ofan okkur og mér sýnast þeir vera á hörku runni þannig að það yrði einhver major katastrófa ef að Þróttur og KA klúðruðu þessu.

„Björgvin er frábær leikmaður og við vissum það alveg fyrir tímabilið að hann gæti skorað, hann hefur gert það gegnum alla yngri flokkana og ég sé ekki af hverju hann ætti ekki að skora í meistaraflokk."

Athugasemdir
banner
banner
banner