Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 27. ágúst 2015 15:00
Elvar Geir Magnússon
Þrír frá Man Utd í úrvalsliði undankeppninnar
Úrvalslið undankeppninnar.
Úrvalslið undankeppninnar.
Mynd: Goal.com
Wayne Rooney skoraði þrennu í gær þegar Manchester United tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Hann er meðal þriggja leikmanna Manchester United sem eru í sérstöku úrvalsliði Goal.com úr undankeppni Meistaradeildarinnar.

Manchester United vann fyrri leikinn 3-1 og einvígið gegn Club Brugge samtals 7-1.

Memphis Depay sem fór á kostum í fyrri leiknum er einnig í úrvalsliðinu líkt og varnarmaðurinn Chris Smalling sem stóð sig vel í einvíginu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá úrvalsliðið en síðar í dag verður dregið í riðlakeppnina.
Athugasemdir
banner
banner
banner