Antonio Conte, stjóri Chelsea var mjög ánægður með spilamennsku sinna manna í 3-0 sigrinum á Burnley í dag.
„Þetta var góður leikur og frammistaða. Við spiluðum góðan fótbolta, hélum boltanum vel, sköpuðum mörg færi og héldum hreinu. Þetta er mikilvægt því við spiluðum 13 heimaleiki í röð án þess að halda hreinu."
„Við höfum byrjað vel á þessari leiktíð en við getum ennþá bætt okkur. Eden Hazard er að bæta sig með hverjum leiknum."
„Við erum að vinna vel saman og við erum enn að finna leikmenn sem geta bætt hópinn," sagði Ítalinn.
Athugasemdir