Jói Berg mætir Chelsea og Gylfi sækir Englandsmeistara heim
Jurgen Klopp fer með sína menn í heimsókn til Tottenham. Það gekk ekki nægilega vel síðast þegar liðið mætti Burnley
Þriðja umferð ensku úrvalsdeildin hefst í dag með átta alvöru leikjum. Þrír þessara leikja eru sýndir í beinni á sportrásum Stöðvar 2.
Dagurinn í dag hefst með stórleik Tottenham og Liverpool á White Hart Lane. Tottenham vann nauman sigur á Crystal Palace í síðustu umferð, en á sama tíma tapaði Liverpool mjög óvænt gegn Burnley. Það verður því áhugavert að sjá hvað gerist í leiknum í dag.
Það eru svo sex leikir klukkan 14:00 og þar spila báðir Íslendingarnir sem leika í ensku úrvalsdeildinni með sínum liðum. Jóhann Berg Guðmundsson hefur byrjað á bekknum hjá Burnley í fyrstu leikjum tímabilsins, en það er spurning hvort hann fái tækifærið á útivelli gegn Chelsea í dag. Svo sannarlega erfiður leikur fyrir Jóa Berg og félaga, en hann verður ekkert auðveldari fyrir Gylfa Þór Sigurðsson og Swansea þegar liðið heimsækir Englandsmeistara Leicester City á sama tíma.
Lokaleikur dagsins er svo alls ekki af verri gerðinni þegar tvö lið sem hafa unnið báða leiki sína hingað til mætast. Nýliðar Hull City sem hafa komið öllum á óvart í upphafi tímabils fá stjörnuprýtt lið Manchester United í heimsókn. Svo sannarlega áhugaverður leikur sem það verður.

Laugardagurinn 27. ágúst
11:30 Tottenham - Liverpool (Stöð 2 Sport)
14:00 Chelsea - Burnley
14:00 Crystal Palace - Bournemouth
14:00 Everton - Stoke
14:00 Leicester - Swansea
14:00 Southampton - Sunderland
14:00 Watford - Arsenal (Stöð 2 Sport)
16:30 Hull - Manchester United (Stöð 2 Sport 2)
Messan er á dagsskrá á mánudaginn klukkan 21:00 á Stöð 2 Sport
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir