Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. ágúst 2016 12:29
Magnús Már Einarsson
Ísland mætir Möltu í nóvember
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ og Knattspyrnusamband Möltu hafa náð samkomulag um vináttulandsleik fyrir A-landslið karla.

Leikurinn fer fram 15. nóvember næstkomandi á Ta'Qali, þjóðarleikvangi Maltverja.

Ísland leikur við Króatíu í undankeppni HM þann 12. nóvember og í kjölfarið heldur liðið til Möltu.

Ísland og Malta hafa tólf sinnum mæst á knattspyrnuvellinum en Ísland hefur unnið níu sinnum, Malta hefur tvívegis borið sigur úr býtum en einu sinni skildu liðin jöfn.

Seinasti landsleikur liðanna var vináttuleikur árið 2008 þar sem Ísland vann 1-0 sigur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner