Heimild: Goal
Manchester City hefur lánað miðjumanninn unga Oleksandr Zinchenko til PSV í Hollandi.
Hinn 19 ára gamli Zinchenko var keyptur til City í síðasta mánuði frá rússneska liðinu FC Ufa en hann fer strax í burtu á láni.
Hinn 19 ára gamli Zinchenko var keyptur til City í síðasta mánuði frá rússneska liðinu FC Ufa en hann fer strax í burtu á láni.
Zinchenko kom við sögu í öllum þremur leikjum Úkraínu á Evrópumótinu en hann var á meðal yngstu leikmanna EM í ár.
Zinchenko er fjölhæfur og getur leikið á báðum vængjunum.
Hann er í úkraínska landsliðshópnum sem mætir Íslandi í undankeppni HM þann 5. september næstkomandi.
.@Azinchenko17 has joined @PSV on a year long loan. Good luck Oleksandr! #mcfc pic.twitter.com/w1pIXCfkTF
— Manchester City (@ManCity) August 26, 2016
Athugasemdir