Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. ágúst 2016 15:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Björn Bergmann með sitt þriðja mark fyrir Molde
Björn Bergmann er að finna takinn í Noregi
Björn Bergmann er að finna takinn í Noregi
Mynd: Molde
Stromsgodset 0 - 2 Molde
0-1 Harmeet Singh ('32, víti)
0-2 Björn Bergmann Sigurðarson ('60 )

Björn Bergmann Sigurðarson var á skotskónum þegar Molde sótti Stromsgodset heim í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Björn kom til Molde í sumar og hann hefur verið að finna sig hingað til. Markið sem hann skoraði í dag var hans þriðja mark í fjórum leikjum fyrir Molde.

Harmeet Singh kom Molde yfir úr vítaspyrnu á 32. mínútu og svo eftir klukkutíma leik bætti Björn Bergmann við marki og sá til þess að Molde kláraði þennan leik á sigri.

Molde fór upp í 4. sæti deildarinnar með þessum sigri, en liðið er nú með 37 stig. Stromsgodset er með 34 stig í 7. sæti.
Athugasemdir
banner
banner