Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. ágúst 2016 16:56
Jóhann Ingi Hafþórsson
Wenger: Vona að Özil skori 10-15 mörk
Arsene Wenger.
Arsene Wenger.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, þjálfari Arsenal var mjög ánægður með 3-1 sigurinn á Watford í dag.

Arsenal komst í 3-0 í fyrri hálfleik og kláraði leikinn. Wenger segir liðið hafa skotið sig í fótinn gegn Liverpool í fyrstu umferðinni en hann var töluvert hressari með liðið í dag.

„Við skutum okkur í fótinn í fyrsta leiknum en núna vorum við mjög sterkir."

„Við vorum með góða forystu í hálfleik en það sást að menn eru ekki 100% í seinni hálfleik. Özil er t.d ekki alveg heill. Ég vona að hann skori 10-15 mörk ofan á færin sem hann skapar."

Hann staðfesti svo kaup á tveim leikmönnum í leiðinni.

„Við erum búinir að kaupa tvo leikmenn. Mustafi og Perez. Þeir koma inn í liðið til að hjálpa okkur," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner