Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. september 2016 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Bild: Özil búinn að skrifa undir samning - Fær treyju númer 10
Mynd: Getty Images
Karlo Kolumna, fréttamaður hjá þýska fjölmiðlinum Bild, greinir frá því að Mesut Özil sé búinn að skrifa undir risasamning við Arsenal.

Özil er leikmaður númer 11 hjá félaginu en hann fær treyju númer 10 í staðinn, sem Jack Wilshere hefur notað undanfarin ár.

Özil kom til Arsenal fyrir þremur árum og kostaði rúmlega 40 milljónir punda, sem gerir hann að dýrasta Þjóðverja sögunnar.

Özil byrjaði rólega en er nú orðinn einn af mikilvægustu leikmönnum félagsins. Á síðasta tímabili skoraði hann 6 mörk og lagði 19 upp.
Athugasemdir
banner
banner