Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 27. september 2016 08:30
Arnar Geir Halldórsson
David Silva er uppáhalds leikmaður Klopp
Stórkostlegur leikmaður að mati Klopp
Stórkostlegur leikmaður að mati Klopp
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var gestur í setti hjá SkySports sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi.

Þar ræddi hann meðal annars um uppáhalds leikmann sinn í ensku úrvalsdeildinni en hann er ekki í herbúðum Liverpool.

„Ég er hrifinn af David Silva. Hann er stórkostlegur leikmaður. Hann er úti um allt og er svo hæfileikaríkur. Svo hefur hann afburða hugarfar."

„Þó nafn hans hafi ekki endilega verið áberandi í umræðunni varðandi frábæra byrjun Man City er ég nokkuð viss um að hann eigi stóran þátt í góðu gengi þeirra."

„Annars er ég ekki mjög áhugasamur um leikmenn annara liða. Þeir geta allir verið hættulegir ef þú leyfir þeim það,"
sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner