Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. september 2016 08:47
Arnar Geir Halldórsson
Sessegnon til Montpellier (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Stephane Sessegnon hefur samnið við franska úrvalsdeildarliðið Montpellier um að leika með liðinu næstu tvö árin.

Hinn 32 ára gamli Sessegnon yfirgaf enska úrvalsdeildarliðið WBA í maí síðastliðnum þar sem félagið hafði ekki áhuga á að framlengja við kappann.

Hann var því enn án félags og var frjálst að semja við nýtt lið þó félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Sessegnon lék einnig með Sunderland í enska boltanum.

Hann þekkir vel til í Frakklandi eftir að hafa leikið meðal annars með PSG í Ligue 1 í nokkur ár.

Montpellier er í vandræðum og hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner