Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. október 2016 14:42
Magnús Már Einarsson
Ivan Bubalo áfram hjá Fram (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatíski framherjinn Ivan Bubalo hefur skrifað undir nýjan samning við Fram. Samningurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu.

Eftir að keppni lauk í Inkasso-deildinni sagði Brynjar Jóhannesson, formaður meistaraflokksráðs Fram, að Bubalo væri á förum.

Það hefur nú breyst en Bubalo hefur skrifað undir nýjan samning og verður eftir allt saman áfram hjá Fram.

Hann fetar í fótspor landa síns Dino Gavric sem gerði nýan samning í gær.

Bubalo skoraði níu mörk í Inkasso-deildinni í sumar sem og eitt mark í Borgunarbikarnum.

„Ivan Bubalo er mikill markaskorari og kom til okkar stuttu fyrir mót í sumar. Það tók hann nokkurn tíma að aðlagast en hann var vaxandi þegar á leið. Við gerum okkur vonir um að hann haldi áfram að bæta sig sem leikmaður og nýtist enn betur á næstu leiktíð," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fram.
Athugasemdir
banner
banner