Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 27. október 2016 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kýldi aðstoðarmann sinn í fyrsta leik sem þjálfari
Dean Keates var áður leikmaður Wrexham og er greinilega mjög annt um félagið.
Dean Keates var áður leikmaður Wrexham og er greinilega mjög annt um félagið.
Mynd: Getty Images
Áhugaverð uppákoma átti sér stað er Dean Keates þjálfaði Wrexham í fyrsta skipti um helgina.

Wrexham mætti þá Barrow í utandeildinni en Keates ærðist úr fögnuði er Wrexham komst yfir og kýldi hann aðstoðarmann sinn, Andy Davies í andlitið í fagnaðarlátunum.

Það var hins vegar ekki nóg þar sem hann fór úr fingurlið er Wrexham skoraði annað mark sitt í leiknum í svipuðum fagnaðarlátum. Barrow tókst hins vegar að jafna og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli.

„Ég endaði á að kýla Andy Davies í andlitið þegar við skoruðum fyrsta markið og ég datt úr lið á puttanum þegar við skoruðum annað markið. Læknir félagsins þurfti að kippa mér aftur í lið," sagði Keates.
Athugasemdir
banner
banner
banner