Lucas Vazquez er búinn að skrifa undir nýjan samning við Real Madrid en hann er nú samningsbundinn félaginu til 2021.
Vazquez er 25 ára gamall en hann hefur spilað reglulega undir stjórn Zinedine Zidane hjá Real en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í september á síðasta ári.
Miðjumaðurinn er búinn að spila 11 leiki á þessari leiktíð en hann kom m.a inná sem varamaður í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Atletico Madrid þar sem hann skoraði úr sinni spyrnu í vítaspyrnukeppninni sem réði úrslitum.
Vazquez var hluti af EM hóp Spánverja í Frakklandi í sumar þar sem hann spilaði einn leik.
Athugasemdir