Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 27. október 2016 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mathieu meiddur og frá í þrjár vikur
Jeremy Mathieu
Jeremy Mathieu
Mynd: Getty Images
Jeremy Mathieu, varnarmaður Barcelona verður frá næst þrjár vikurnar eða svo vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 1-0 tapi gegn Espanyol í vináttuleik í vikunni.

Frakkinn byrjaði leikinn á þriðjudag en hann þurfti að fara af velli eftir 54 mínútur vegna meiðslanna.

Eftir rannsóknir hjá læknateymi spænska félagsins er ljóst að hann verður frá í þrjár vikur en meiðslin eru í hægri löpp hans.

Hinn 32 ára gamli Frakki hefur spilað sex leiki fyrir Barcelona í öllum keppnum og skoraði í þeim eitt mark.

Hann er nú á sjúkralistanum ásamt Gerard Pique og Jordi Alba og eru því varnarmenn félagsins af skorum skammti þessa dagana.
Athugasemdir
banner
banner
banner